Ísadóra Nótt er alveg einstök.
Hún er hálf vampíra og hálfur álfur. Pabbi hennar er vampíra og mamma hennar álfur og hún er blanda af þessu tvennu.
Bækurnar um Ísadóru eru skemmtilegar, spennandi, fyndnar og öðruvísi. Hver bók er um 120 bls. og þær eru ríkulega myndskreyttar með stóru og aðgengilegu letri.
Það koma þrjár bækur á ári; í mars, ágúst og nóvember.
Síðasta bók hvers árs er harðspjaldabók en hinar tvær í mjúku bandi.
Áskrifendur verða leynifélagsmeðlimir!